Arion banki ásamt fleirum tekur þátt í fjármögnun kaupa á bandarísku sjávarútvegsfyrirtæki

Arion banki ásamt fleirum tekur þátt í fjármögnun kaupa á bandarísku sjávarútvegsfyrirtæki

Fyrr í mánuðnum var undirritaður samningur um kaup Cooke Seafood USA, sem er í eigu Cooke fjölskyldunnar í Canada, á sjávarútvegsfyrirtækinu Wanchese Fish Company, sem staðsett er í Virginiu í Bandaríkjunum. Félagið stundar veiðar og vinnslu á hörpuskel og krabba, auk þess að stunda eldi á ostrum og vinnslu á ýmiskonar sjávarafurðum. Kaupin voru fjármögnuð að hluta til af Arion banka í samtarfi við erlend fjármálafyrirtæki.

Cook Seafood USA er spennandi viðbót í flóru viðskiptavina Arion banka. Um er að ræða fyrstu fjármögnun Arion banka til sjávarútvegsfyrirtækis í Norður Ameríku.