23. janúar 2018
Tímabundið þjónusturof á stafrænum lausnum
Á milli klukkan 20 og 22 í kvöld verður gerð uppfærsla á þjónustum sem tengjast stafrænum lausnum á vef Arion banka. Á þeim tíma má því búast við tímabundnu þjónusturofi sem haft getur áhrif á eftirfarandi:
- Rafrænt greiðslumat
- Rafræn íbúðalán
- Rafræn endurfjármögnun
- Núlán
- Stofnun bankaviðskipta einstaklinga og fyrirtækja
Athygli er vakin á að uppfærslan mun hvorki hafa áhrif á netbankann né Arion appið.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.