22. maí 2015
Guðfinna Helgadóttir af Eignastýringarsviði og Höskuldur Darri Ellertsson vinningshafi
Afþakkaði pappír og vann iPad
Höskuldur Darri Ellertsson vann nýverið iPad eftir að hann afþakkaði áramótayfirlit verðbréfaviðskipta á pappírsformi.
Í upphafi árs voru viðskiptavinir hvattir til að leggja sitt af mörkum til að draga úr pappírsnotkun. Þeir sem afþökkuðu áramótayfirlit verðbréfaviðskipta á pappír í netbankanum fóru í pott og áttu möguleika á að vinna.
Við óskum Höskuldi innilega til hamingju og hvetjum um leið viðskiptavini til að afþakka pappír í netbanka.