Fjárfestingarstefna Lífeyrisauka 2021 og breytingar á fyrirkomulagi Ævilínu

Fjárfestingarstefna Lífeyrisauka 2021 og breytingar á fyrirkomulagi Ævilínu

Fjárfestingarstefna Lífeyrisauka 2021 og breytingar á fyrirkomulagi Ævilínu - mynd

Starfsstjórn Lífeyrisauka, viðbótarsparnaðar Arion banka, endurskoðar árlega fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerir breytingar ef við á, með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi. Lágvaxtaumhverfi hefur skapað nýjar áskoranir í fjárfestingum og tekur endurskoðuð fjárfestingarstefna mið af þeim. Stefna ársins 2021 er í takt við þróun síðustu ára, þ.e. vægi erlendra eigna vex samhliða því sem dregið hefur verið úr vægi innlendra eigna. Fjölbreytni erlends eignasafns er aukið og skuldabréfasafn sjóðsins fært í áhættumeiri kosti samhliða breytingum í fjárfestingaumhverfi.

Stefna Lífeyrisauka í ábyrgum fjárfestingum er jafnframt endurskoðuð árlega og má nálgast hana í fjárfestingarstefnu fyrir árið 2021 ásamt því að hún er birt á vefsíðu sjóðsins samhliða öðrum frekari upplýsingum um framkvæmd sjóðsins í málefnum ábyrgra fjárfestinga.

Um Ævilínu

Í Lífeyrisauka geta sjóðfélagar valið á milli fjölbreyttra fjárfestingarleiða sem mæta ólíkum þörfum eftir aldri og viðhorfi til áhættu. Leiðirnar eru sjö, þar af fimm innan Ævilínu. Mismunur leiðanna felst einkum í ólíkri samsetningu eignaflokka, svo sem hlutfalli hlutabréfa í safni á móti öðrum fjármálagerningum, líkt og skuldabréfum og víxlum sem og innlánum í bönkum og sparisjóðum. Hafi sjóðfélagi valið að vera í Ævilínu, færist inneign sjálfkrafa á milli Lífeyrisauka 1-5 eftir því sem sjóðfélagi eldist.

Breytingar á fyrirkomulagi Ævilínu sem taka gildi 1. janúar 2021

  • Fjárfestingarleiðir innan Ævilínu verða áfram fimm en lokaleið Ævilínu mun framvegis fjárfesta í innlendum skuldabréfum í stað innlána og leiðin fær því nýtt heiti, Lífeyrisauki 5 innlend skuldabréf. Skuldabréfaleiðin hefur staðið sjóðfélögum til boða í fjölda ára sem sjálf-stæð leið utan Ævilínu. Innlánaleiðin verður áfram í boði en verður nú sjálfstæð leið utan Ævilínu og kallast Innlán.

  • Flutningur úr Lífeyrisauka 4 í Lífeyrisauka 5 mun hefjast þegar 61 árs aldri er náð og fara fram í fimm skrefum á fimm árum í stað þess að eiga sér stað í einu lagi við fyrstu útgreiðslu.

  • Flutningur á inneign hvers sjóðfélaga sem er 63 ára eða eldri á árinu 2021, og hefur ekki þegar hafið útgreiðslur, mun fara fram í þremur skrefum á þremur árum.
     
Flutningur úr Lífeyrisauka 4 í Lífeyrisauka 5


Ævilína eftir breytingar
 

Valfrelsi sjóðfélaga

Sem fyrr standa sjóðfélögum alls til boða sjö fjárfestingarleiðir auk möguleikans á því að velja Ævilínu.

Hægt er að flytja uppsafnaða inneign að hluta eða öllu leyti í aðra leið og/eða breyta um leið fyrir framtíðariðgjöld, hvenær sem er, án kostnaðar. Slíkan flutning geta sjóðfélagar framkvæmt sjálfir á Mínum síðum sjóðsins á þeim tímapunkti sem þeim þykir henta best.

Telji sjóðfélagi í Ævilínu ofantaldar breytingar á fyrirkomulagi hennar eða fjárfestingarstefnu Lífeyrisauka 5 innlend skuldabréf ekki henta hafa þeir áfram val um að flytja inneign sína í innlánaleiðina eða aðrar leiðir. Enn fremur er vert að vekja athygli á að inneign sjóðfélaga sem þegar er í innlánaleið sjóðsins verður ávöxtuð þar áfram nema sjóðfélagi óski eftir öðru. Í breyttu efnahagsumhverfi, þar sem raunvextir eru alla jafna neikvæðir og stýrivextir í sögulegu lágmarki er vert að benda á mikilvægi þess að meta hvaða leið hentar best hverjum og einum, út frá aldri og væntingum til ávöxtunar.

Sjóðfélögum er velkomið að hafa samband við ráðgjafa í Lífeyrisþjónustu Arion banka sem svara þeim spurningum er kunna vakna um flutning á inneign milli leiða og annað sem snýr að sjóðnum.

Nánari upplýsingar um flutninga milli leiða má nálgast hér.