Lækkun á óverðtryggðum vöxtum íbúðalána
Í kjölfar lækkunar Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum, sem kynnt var 14. júní, hefur verið ákveðið að lækka óverðtryggða vexti íbúðalána Arion banka um 0,25 prósentustig.
- Breytilegir óverðtryggðir vextir voru 6,10% og lækka í 5,85%
- Óverðtryggðir vextir fastir til þriggja ára voru 6,15% og lækka í 5,90%
- Óverðtryggðir vextir fastir til fimm ára voru 6,20% og lækka í 5,95%
Vaxtalækkunin hefur áhrif á öll ný íbúðalán með óverðtryggðum vöxtum sem veitt eru frá og með 21. júní og eldri íbúðalán sem bera breytilega óverðtryggða vexti. Breytingin hefur hvorki áhrif á verðtryggð lán né eldri lán með föstum, óverðtryggðum vöxtum.
Nánari upplýsingar um íbúðalán Arion banka má finna á sérstakri íbúðalánasíðu en frekari upplýsingar um vexti eru í vaxtatöflu og í yfirliti vaxtaþróunar.