Hvaða seðla má bjóða þér?
Í hraðbönkum Arion banka í Borgartúni 18, Kringlunni, Höfðaútibúi og Smáranum er nú hægt að velja samsetningu seðla þegar úttekt er framkvæmd. Þannig geta viðskiptavinir fengið nákvæmlega þá seðla sem þeir þurfa. Einnig er nú hægt að greiða fleiri enn greiðsluseðil í einu í hraðbönkunum.
Viðskiptavinir okkar hafa að undanförnu óskað eftir að geta framkvæmt þessar aðgerðir í hraðbönkum bankans og því er það okkur sönn ánægja að geta komið til móts við þarfir þeirra með þessu móti.
Hjá Arion banka hefur að undanförnu verið innleidd ný tegund fullkominna hraðþjónustubanka sem bjóða upp á fjölmarga nýjungar sem ekki þekktust í eldri hraðbönkum. Sem dæmi um þær aðgerðir sem viðskiptavinir ættu orðið að þekkja vel má nefna innlagnir seðla, millifærslur og hærri úttektir en áður voru leyfðar. Við munum áfram leggja okkur fram um að þróa og kynna nýjar lausnir til að stuðla að enn þægilegri bankaþjónustu fyrir viðskiptavin okkar.