Vegna skuldfærslna Icelandair
Icelandair skuldfærði nýverið mikinn fjölda viðskipta á greiðslukort viðskiptavina. Um er að ræða viðskipti sem áttu sér stað um borð í vélum Icelandair allt frá janúar á þessu ári. Viðskiptin eru dagsett í júlí óháð því hvenær á árinu þau áttu sér stað. Gera má ráð fyrir að færslur sem þessar frá Icelandair komi inn á kort viðskiptavina sem áttu viðskipti um borð í vélum Icelandair áfram á næstu dögum. Um er að ræða færslur sem ekki hefur verið skuldfært fyrir áður, en dagsetningin er röng.
Hafi viðskiptavinir spurningar vegna þessara skuldfærslna, hvetjum við þá til að setja sig í samband við Icelandair á eftirfarandi hátt:
- Fylla út þetta eyðublað á heimasíðu Icelandair
- Netspjall á heimasíðu félagsins
- Hafa samband við Icelandair í síma 505-0100