Helga og Hjalti til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka

Helga og Hjalti til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka

Helga og Hjalti til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka - mynd

Helga Lára Hauksdóttir og Hjalti Már Hauksson hafa gengið til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Helga Lára hefur starfað á fjármálamarkaði í tæplega 15 ár, nú síðast hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna þar sem hún sinnti verkefnum sem tengjast eignastýringu og fjárfestingum hér á landi sem og erlendis. Áður vann Helga Lára hjá Arion banka, Kaupþingi og lögmannstofunni Olswang í London. Helga er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með áherslu á viðskipta- og skattarétt.

Hjalti Már hefur starfað hjá Arion banka frá árinu 2010, nú síðast sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði þar sem hann hefur sinnti verkefnum á sviði laxeldis, sjávarútvegs og fasteigna. Áður gegndi Hjalti meðal annars starfi lánastjóra á fyrirtækjasviði og sérfræðings á viðskiptabanksviði. Hjalti Már er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistaragráðu í fjármálahagfræði frá IESE.

  

Helga Lára Hauksdóttir

Hjalti Már Hauksson