Við fjölgum í þjónustuverinu okkar yfir mánaðarmótin – Tökumst á við þetta saman
Í ljósi aðstæðna mun áfram vera lokað á heimsóknir í útibú okkar nema þær séu bókaðar fyrir fram og þá einungis fyrir mjög brýn erindi. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að nýta aðrar þjónustuleiðir eins og Arion appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma nær allar aðgerðir.
Við erum áfram til staðar fyrir þig og höfum fjölgað starfsfólki til að sinna erindum í þjónustuverinu yfir mánaðarmótin. Þú getur heyrt í okkur í síma 444 7000, sent okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða haft samband við okkur í gegnum netspjall á www.arionbanki.is. Einnig eru hraðbankar okkar aðgengilegir um land allt og bjóða nær allir upp á innlagnir, úttektir og margt fleira.
Ef erindið er brýnt getur þú bókað tíma
Ef úrlausnarefnið er brýnt getur þú óskað eftir afgreiðslu í útibúi. Þjónusta í útibúi er þó aðeins veitt ef erindið er þess eðlis að ekki er unnt að leysa úr málum nema augliti til auglits. Í slíkum tilvikum þarftu að bóka tíma sérstaklega. Hringdu í okkur, sendu tölvupóst eða skráðu þig hér fyrir neðan og við höfum samband við þig varðandi tímabókun.
Tökumst á við þetta saman.