Moon Chocolate valið nemendafyrirtæki ársins 2016

Moon Chocolate valið nemendafyrirtæki ársins 2016

Fyrirtæki ársins: Moon Chocolate (Verzlunarskóli Íslands) - mynd
Fyrirtæki ársins: Moon Chocolate (Verzlunarskóli Íslands)
Fyrirtæki ársins - 2. sæti: EaseLand (Verzlunarskóli Íslands) - mynd
Fyrirtæki ársins - 2. sæti: EaseLand (Verzlunarskóli Íslands)
Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Localice (Fjölbrautarskólinn við Ármúla) - mynd
Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Localice (Fjölbrautarskólinn við Ármúla)

Nemendafyrirtækið Moon Chocolate frá Verzlunarskóla Íslands var valið fyrirtæki ársins 2016 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Fyrirtækið selur handgert hágæðasúkkulaði úr tansanískum kakóbaunum.

Fimmtán nemendafyrirtæki frá átta menntaskólum tóku þátt í lokakeppninni sem fram fór í Arion banka miðvikudaginn 27. apríl.

Moon Chocolate verður fulltrúi Íslands í keppni um evrópskt nemendafyrirtæki ársins sem fram fer í Lucerne í Sviss 25.-28. júlí 2016.

Eftirfarandi nemendafyrirtæki fengu verðlaun:

  • Fyrirtæki ársins: Moon Chocolate (Verzlunarskóli Íslands)
  • Fyrirtæki ársins - 2. sæti: EaseLand (Verzlunarskóli Íslands)
  • Fyrirtæki ársins - 3. sæti: Localice (Fjölbrautarskólinn við Ármúla)
  • Bestu markaðs- og sölumálin: Necklash (Menntaskólinn við Sund)
  • Mesta nýsköpunin: WATT (Fjölbrautaskólinn í Breiðholti)
  • Besta viðskiptaáætlunin: Sláturfélagið (Verzlunarskóli Íslands)
  • Söluhæsta varan: Sláturfélagið (Verzlunarskóli Íslands)
  • Viðurkenning fyrir áherslu á sjálfbærni: Bébé (Menntaskólinn við Hamrahlíð)