Morgunverðarfundur um félagslegar framfarir
Þriðjudaginn 17. janúar verður haldinn morgunverðarfundur í höfuðstöðvum Arion banka um félagslegar framfarir út frá VFF, vísitölu félagslegra framfara (Social Progress Index).
VFF vísitalan er reiknuð út árlega fyrir 133 lönd í hinum ýmsu heimsálfum og 272 svæði innan Evrópusambandsins og mælir hversu vel tekist hefur til við að tryggja íbúum aðgengi að grunnþörfum, almenna velferð og tækifæri einstaklinga til betra lífs. Meðal þátta sem teknir eru inn í vísitöluna eru aðgengi að heilsugæslu, menntun og hagkvæmu húsnæði sem og staða jafnréttismála og trúfrelsis.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Cognitio, Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins og Sigurður Páll Hauksson, forstjóri Deloitte, verða með erindi á fundinum.
Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 og hefst kl. 8.15 með léttum morgunverði. Nánari upplýsingar og skráning hér.