Viðskiptavinir fá nýtt debetkort með snertilausri tækni
Í sumar munu viðskiptavinir með debetkort frá Arion banka fá sent nýtt kort sem kemur í stað eldri Maestro og Visa Electron debetkorta. Nýja kortið kallast Visa Debit og er hefðbundið debetkort en því fylgja nokkrir nýir og spennandi notkunarmöguleikar.
Með Visa Debit er hægt að greiða snertilaust og greiða fyrir vörur og þjónustu á netinu. Einnig er hægt að nota kortið hjá mun fleiri söluaðilum en eldri kort, eða á um 40 milljón sölustöðum um allan heim.
Allir debetkorthafar Arion banka munu fá nýja kortið sent heim á næstu vikum og mánuðum.
Allar helstu upplýsingar varðandi Visa Debit og snertilausar greiðslur má finna á arionbanki.is/snertilaust.