Arion banki innkallar endurskinsmerki
Arion banki innkallar endurskinsmerki sem hafa verið afhent á vegum bankans. Ástæða innköllunarinnar er að við athugun Umhverfisstofnunar á sambærilegum merkjum kom upp grunur um frávik frá reglum Evrópusambandsins um efnainnihald. Um er að ræða endurskinsmerki með myndum af þeim Ara, Bíbí og Blaka úr Sparilandi.
Foreldrar og forráðamenn eru vinsamlegast beðnir um taka endurskinsmerkin úr umferð og setja í flokkun á endurvinnslustöð með öðru plasti eða skila í næsta útibú Arion banka. Við biðjumst velvirðingar á þessu.