09. desember 2020
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Arion banki lækkar vexti
Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05-0,25 prósentustig. Útlánavextir lækka um að allt að 0,25 prósentustig.
Helstu breytingar sem taka gildi 11. desember eru eftirfarandi:
- Yfirdráttarvextir lækka um allt að 0,25 prósentustig
- Breytilegir vextir verðtryggðra íbúðalána lækka um 0,20 prósentustig
- Breytilegir vextir óverðtryggðra íbúðalána lækka um 0,10 prósentustig
- Kjörvextir og kjörvextir bílalána lækka um 0,10 prósentustig
- Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05-0,25 prósentustig