09. janúar 2015
Arion banki kaupir tilbaka skuldabréf bankans í norskum krónum
Arion banki hefur í dag keypt tilbaka skuldabréf fyrir 59 milljónir norskra króna að nafnvirði af 500 milljóna norskra króna útgáfu sinni frá árinu 2013.
Alls bárust átta tilboð um endurkaup fyrir samtals 171 milljón norskra króna. Skuldabréfin voru keypt á verðinu 102,5 sem samsvarar 2,79% álagi yfir NIBOR. Pareto Securities sá um endurkaupin fyrir hönd Arion banka.