Styrkir í nafni framúrskarandi fyrirtækja
Fyrr á árinu hlaut hópur vel valinna fyrirtækja nafnbótina Framúrskarandi fyrirtæki. Við hjá Arion og Verði erum afar hreykin af því að vera í samstarfi við fjölmörg fyrirtæki í þeim frábæra hópi.
Við ákváðum því að fagna þessari verðskulduðu viðurkenningu í sameiningu með því að láta gott af okkur leiða.
Hvert og eitt framúrskarandi fyrirtæki fékk val um að styrkja eitt eftirfarandi góðgerðarsamtaka í boði okkar: Menntunarsjóð Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossinn eða Ljósið. Öll hafa þessi samtök látið til sín taka í íslensku samfélagi og unnið þarft starf.
Samtals hljóðaði styrkurinn upp á 2.900.000 kr.