Kristbjörg Héðinsdóttir nýr svæðisstjóri á höfuðborgarsvæðinu

Kristbjörg Héðinsdóttir nýr svæðisstjóri á höfuðborgarsvæðinu

Kristbjörg Héðinsdóttir - myndKristbjörg Héðinsdóttir

Kristbjörg Héðinsdóttir hefur verið ráðin í starf svæðisstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Kristbjörg hefur undanfarna mánuði gegnt stöðu útibússtjóra í Borgartúni og mun gegna þeirri stöðu áfram samhliða starfi svæðisstjóra.

Kristbjörg er viðskiptafræðingur að mennt en hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og námi í markþjálfun. Kristbjörg hefur starfað hjá Arion banka frá árinu 2004. Eins og áður sagði er Kristbjörg útibússtjóri í Borgartúni, hún var áður útibússtjóri í Garðabæ en hefur einnig gegnt starfi forstöðumanns þjónustustýringar hjá bankanum.