Söluferli TravelCo, Heimsferða og Terra Nova Sól
Arion banki hefur hafið söluferli á öllu hlutafé TravelCo hf., Heimsferða ehf. og Terra Nova Sól ehf. Félögin reka ferðaskrifstofur á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Starfsemin á Íslandi hefur farið fram undir merkjum ferðaskrifstofanna Heimsferða og Terra Nova.
Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, fyrirtaekjaradgjof@arionbanki.is.
Þátttaka í söluferli þessu er eingöngu heimil aðilum sem njóta flokkunar Arion banka hf. sem hæfir fjárfestar skv. 9. tl. 43. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og verður öðrum fjárfestum neitað um þátttöku. Athygli fjárfesta er sérstaklega vakin á því að ekki verður birt lýsing í tengslum við söluferlið sbr. a-lið 1.tl. 1. mgr. 50. gr. laga um verðbréfaviðskipti.