11. desember 2019
Skertur opnunartími í dag í útibúum Arion banka á Norður- og Austurlandi
Útibú Arion banka á Norður- og Austurlandi verða lokuð til a.m.k. klukkan 12:00 í dag vegna þess veðurs sem gengið hefur yfir landið og þeirrar ófærðar sem nú er þar víða. Staðan verður endurmetin þegar líður á daginn.
Viðskiptavinum er bent á Arion banka appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma allar helstu aðgerðir. Þá er hægt að fá þjónustu í netspjalli og með því að hringja í þjónustuver bankans í síma 444 7000.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.