Tekið eftir áherslu Arion banka á framúrskarandi fyrirtækjalausnir
Arion hefur hlotið tilnefningu brandr sem vörumerki ársins 2025, annað árið í röð. Að þessu sinni erum við tilnefnd sem vörumerki ársins á fyrirtækjasviði.
„Við erum í skýjunum með það enda höfum við lagt mikla vinnu í stefnumótun og vöruþróun á fyrirtækjasviði á síðustu misserum og kynnt fjölda nýjunga fyrir viðskiptavinum okkar,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. „Við nýtum þessa hvatningu frá brandr auðvitað til að halda áfram að gera okkar allra besta og styðja við fyrirtækin í landinu.“
Nýjar lausnir bankans þróaðar samkvæmt ábendingum og þörfum viðskiptavina
Fyrirtækjasvið Arion banka hefur lengi verið leiðandi afl í nýsköpun á fjármálamarkaði og byggir viðskiptamódel sitt á öruggum, skilvirkum og stafrænum lausnum sem styðja við sjálfbæran vöxt íslenskra fyrirtækja. Við nálgumst markaðinn með því að sameina tækninýjungar, innsýn úr gögnum og náið samstarf við viðskiptavini.
Árið 2023-2024 breyttum við nálgun okkar á þróun stafrænna lausna bankans til að endurspegla enn frekar þá stefnu okkar. Við byrjuðum á að greina ábendingar og athugasemdir viðskiptavina og í framhaldinu hófum við umfangsmikla vegferð með fjölda djúpviðtala við starfsfólk fyrirtækja í viðskiptum við okkur, allt frá einyrkjum til stórfyrirtækja. Í kjölfarið mótuðum við forgangslista sem endurspeglar ólíkar fjármálaþarfir á mismunandi stigum í rekstri. Að vinna nýjar lausnir á þennan hátt, í náinni samvinnu við viðskiptavini okkar, hefur skilað miklum árangri og ánægju meðal viðskiptavina okkar. Gleðilegt er að eftir því sé tekið, eins og tilnefning brandr er til marks um.
Í fararbroddi í lok árs 2025
Hákon Hrafn Gröndal, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs Arion banka, segir að þjónusta fyrirtækjasviðs bankans nái til allra stærðarflokka fyrirtækja, allt frá sprotum til stórfyrirtækja, og framtíðarsýnin sé skýr: að gera fjármálaþjónustu einfaldari, hraðari og aðgengilegri.
„Þó að fyrirtækin í markhópum okkar séu auðvitað oft ólík eiga þau þó alltaf eitt sameiginlegt: þar starfar fólk sem sér um fjármálin,“ bendir Hákon á. „Og við leggjum sérstaka áherslu á að ná til fjármálastjóranna, tala beint við þá og þjónusta þá. Því við erum með allt fyrir fjármálastjórann.“
„Eins er ánægjulegt að sjá að sú áhersla sem við höfum lagt á lausnir og tækninýjungar skilar sér í mælanlegum árangri,“ bætir Hákon við. „En samkvæmt Gallup mælumst við efst meðal banka þegar kemur að því að vera í fararbroddi í lok árs 2025.“
Fimm önnur flott fyrirtæki einnig tilnefnd
Auk okkar hljóta fimm önnur frábær fyrirtæki tilnefningu frá brandr í sama flokki: Ölgerðin, Advania, Payday, Dropp og Hoobla.
Við óskum þeim hjartanlega til hamingju – og þökkum fyrir okkur.