Arion banki breytir vöxtum
Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast þann 3. september næstkomandi.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Óverðtryggð íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,20 prósentustig og verða 3,74%
- Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,14 prósentustig og verða 4,49%
Kjörvextir
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,20 prósentustig og verða 4,90%
Bílalán
- Kjörvextir bílalána hækka um 0,20 prósentustig og verða 5,30%
Yfirdráttur og greiðsludreifing
- Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,25 prósentustig
Innlán
- Breytilegir óverðtryggðir innlánavextir hækka ýmist um allt að 0,25 prósentustig eða haldast óbreyttir en vextir á t.d. veltureikningum haldast óbreyttir
Vextir verðtryggðra íbúðalána og verðtryggðir kjörvextir haldast óbreyttir.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.