Arion banki lækkar fasta óverðtryggða íbúðalánavexti

Arion banki lækkar fasta óverðtryggða íbúðalánavexti

Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19 - myndHöfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19

Arion banki hefur lækkað óverðtryggða íbúðalánavexti fasta til þriggja ára úr 4,49% í 4,20%. Lækkunin tekur gildi í dag, 23. febrúar 2021.

Vextir íbúðalána með föstum vöxtum ráðast einna helst af stöðu á skuldabréfamarkaði og þeim tækifærum sem bankinn hefur til að fjármagna slík lán. Vaxtalækkunin nú kemur í kjölfar þess að ávöxtunarkrafa sértryggðra skuldabréfa bankans hefur lækkað á síðustu mánuðum og aukinnar eftirspurnar eftir sértryggðum skuldabréfum bankans.