App frá 25 ára gömlum afsláttar- og fríðindaklúbbi slær í gegn

App frá 25 ára gömlum afsláttar- og fríðindaklúbbi slær í gegn

App Einkakúbbsins. - mynd
App Einkakúbbsins.
Stefán Jökull Stefánsson, sérfræðingur Arion banka í stafrænni markaðssetningu. - mynd
Stefán Jökull Stefánsson, sérfræðingur Arion banka í stafrænni markaðssetningu.

Yfir 12.000 manns sóttu sér app Einkaklúbbsins fyrstu tvær vikurnar eftir útgáfu. Samkvæmt Jóni Andra hjá Stokki Software, sem bjó til appið í samstarfi við Arion banka, fer það þar með í hóp þeirra 10 íslensku smáforrita sem hafa fengið hröðustu útbreiðslu eftir að þau urðu aðgengileg.

Einkaklúbburinn hefur verið meðal stærstu fríðinda- og afsláttarklúbba landsins frá stofnun árið 1992, en aðild að klúbbnum hefur um árabil veitt aðgang að tilboðum hjá hundruðum fyrirtækja um allt land. Í janúar 2017 fengu allir viðskiptavinir Arion banka aðgang að Einkaklúbbnum þeim að kostnaðarlausu.

Appið er bylting í starfsemi Einkaklúbbsins. Það leysir af hólmi kort og prentaða árbók með rifgötuðum tilboðsmiðum og lista yfir fyrirtæki sem veita félögum afslátt og fríðindi. Nú er listinn kominn í appið og rifgötuðu miðarnir orðnir að einskiptis tilboðum sem hægt er að virkja í appinu þegar fólki hentar. Með appinu færist Einkaklúbburinn sem sagt úr umhverfi Gutenbergs og póstberans inn í stafrænan heim netsins. Einkaklúbburinn er í eigu Arion banka og nóg er að vera með netbanka Arion banka til geta sótt sér Einkaklúbbsappið.

Að sögn Stefáns Jökuls Stefánssonar, sérfræðings bankans í stafrænni markaðssetningu, hafa að jafnaði rúmlega 1.200 manns nýtt sér appið dag hvern eftir fyrstu vikuna sem það varð aðgengilegt. Einkaklúbbsappið er hluti af þeirri stefnu Arion banka að vera fremsti stafræni banki landsins og auka þannig þægindi viðskiptavina og efla þjónustu. Áður hefur Arion banki meðal annars kynnt stafrænar leiðir til að stofna til bankaviðskipta og dreifa kreditkortagreiðslum. Þá er Arion banki eini banki landsins sem býður fólki að sækja um greiðslumat og íbúðarlán á netinu.