Tímabundin lokun tveggja útibúa Arion banka á höfuðborgarsvæðinu – opið á Bíldshöfða, í Smáranum og í stafrænu útibúi við Hagatorg
Sem varúðarráðstöfun verða tímabundið aðeins þrjú af fimm útibúum bankans á höfuðborgarsvæðinu opin hverju sinni. Öryggi viðskiptavina og starfsfólks ásamt því að tryggja þjónustu við viðskiptavini er forgangsatriði og því er gripið til þessara ráðstafanna.
Viðskiptavinum á höfuðborgarsvæðinu sem þurfa að sækja þjónustu í útibúi er því bent á útibú Arion banka á Bíldshöfða í Reykjavík, í Smáranum í Kópavogi og stafrænt útibú við Hagatorg. Útibú Arion banka í Borgartúni 18 og í Kringlunni verða lokuð tímabundið en sjálfsafgreiðsluvélar útibúanna verða áfram opnar og bjóða bæði upp á úttektir og innlagnir auk fjölda annarra aðgerða. Opið verður í geymsluhólf í Borgartúni 18 frá kl. 09:00-11:00 alla virka daga.
Við bendum viðskiptavinum á kosti þess að nýta stafrænar þjónustuleiðir eins og Arion appið og netbankann og biðjum þá að takmarka komur í útibú eins og unnt er. Jafnframt er hægt að hringja í þjónustuver bankans í síma 444 7000, þar sem aukinn fjöldi starfsfólks sinnir viðskiptavinum, og hafa samband við okkur í gegnum netspjall á www.arionbanki.is og í gegnum netfangið arionbanki@arionbanki.is. Fjármálaráðgjöf fer nú fram í gegnum síma en ekki í útibúum og er hægt að panta tíma á vef bankans.
Viðskiptavinum sem sjá fram á erfiðleika við að standa skil á afborgunum íbúðarlána vegna Covid-19 og hyggjast nýta sér greiðsluhlé á afborgunum er bent á frekari upplýsingar á vef bankans. Einnig er þeim velkomið að hafa samband í gegnum netfangið greidsluhle@arionbanki.is.
Víð ítrekum öryggi þess að greiða með snertilausum lausnum, svo sem síma, greiðslukortum eða úri.