Opið fyrir umsóknir í Startup Reykjavik

Opið fyrir umsóknir í Startup Reykjavik

Opið fyrir umsóknir í Startup Reykjavik - mynd

Nú er opið fyrir fyrir umsóknir í Startup Reykjavik. Leitað er eftir öflugum teymum með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greina sem ætlaðar eru alþjóðamarkaði.

Tæplega 60 fyrirtæki hafa tekið þátt í verkefninu frá árinu 2012 og samtals hafa fengið vel á þriðja milljarð íslenskra króna í fjármögnun. Tekið er á móti umsóknum til 8. apríl í gegnum startupreykjavik.is.

Startup Reykjavik er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki er eigandi verkefnisins og fjárfestir jafnframt 2,4 milljónum króna í hverju fyrirtæki sem valið er til þátttöku.