Arion hlýtur tilnefningu sem besta vörumerkið 2024
Arion er á meðal fimm vörumerkja sem tilnefnd eru af brandr sem besta vörumerki vinnustaðar árið 2024. Hin fyrirtækin, sem tilnefnd eru í sama flokki, eru Advania, Elko, Nova og Orkan. Tilkynnt verður um sigurvegara þann 5. febrúar næstkomandi.
Þau fyrirtæki, sem tilnefnd eru, teljast hafa byggt upp vörumerki sem laðar að hæfileikaríkt starfsfólk, hefur skýra stefnu, hlýtur meðmæli starfsmanna, býður upp á tækifæri til starfsþróunar og heldur vel í starfsfólk.
Brandr er íslensk vörumerkjastofa sem sérhæfir sig í stefnumótun og þróun vörumerkja. Á hverju ári veitir brandr viðurkenningar fyrir bestu íslensku vörumerkin, með áherslu á nýstárleg og árangursrík vörumerkjamál. Hér má lesa sér frekar til um verðlaunin og þau fyrirtæki sem tilnefnd eru í öðrum flokkum.