15. apríl 2024
Hákon L. Akerlund nýr öryggisstjóri Arion banka
Hákon L. Akerlund hefur tekið við starfi öryggisstjóra Arion banka. Hákon kom til Arion banka frá Landsbankanum. Þar starfaði hann við öryggismál á upplýsingatæknisviði frá árinu 2008 til ársins 2011 þegar hann tók við starfi öryggisstjóra upplýsingatækni.
Áður en Hákon hóf störf hjá Landsbankanum starfaði hann hjá EJS frá árinu 1999 og þar áður gegndi hann starfi aðstoðarmanns sendiherra Íslands í sendráðinu í Stokkhólmi frá árinu 1988.