Engar verðskrárhækkanir út árið

Engar verðskrárhækkanir út árið

Við höfum tilkynnt viðskiptavinum okkar að fallið hefur verið frá fyrirhuguðum hækkunum á verðskrá vegna þjónustu gjaldkera. Um er að ræða verðskrárhækkanir sem áttu að taka gildi 1. mars.

Einnig var ákveðið að verð á þjónustu yrði ekki hækkað út þetta ár. Þetta var tilkynnt þó með þeim fyrirvara að ytri áhrifaþættir, eins og t.d. breytingar á skatti, gætu leitt til verðbreytinga.

Á vef Arion banka má finna tilkynninguna til viðskiptavina og yfirlit yfir verð vegna algengra þjónustuþátta í útibúum okkar.