240 teymi sóttu um að taka þátt í Startup Reykjavík 2014
Nýsköpunarsmiðjan Startup Reykjavík mun fara fram í þriðja sinn nú í sumar og standa yfir frá 16. júní til 23. ágúst. Sem fyrr barst mikill fjöldi umsókna og styttist í að tilkynnt verði hvaða 10 verkefni munu taka þátt í Startup Reykjavík í sumar. Góður stígandi hefur verið í fjölda umsókna undanfarin ár en í ár bárust 240 umsóknir sem er 16% aukning frá fyrra ári. Það eru Arion banki og Klak Innovit sem standa að Startup Reykjavík.
Þau teymi sem valin verða til þátttöku verða tilkynnt á Startup Iceland ráðstefnunni sem fer fram í byrjun júní. Teymunum tíu verður lagt eftirfarandi til:
- 2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
- 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu
- Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna
- Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins
Arion banki hefur fjárfest í 20 sprotafyrirtækjum í gegnum Startup Reykjavík á síðustu tveimur árum og munu tíu ný fyrirtæki bætast í þann hóp nú í sumar.
Arion banki styður einnig við Startup Energy Reykjavík sem er nýsköpunarsmiðja fyrir sprota í orkutengdum iðnaði. Í ár voru sjö fyrirtæki valin til þátttöku sem kynntu sig fyrir fjárfestum á svokölluðum fjárfestadegi sem fram fór í höfuðstöðvum Arion banka síðastliðinn miðvikudag. Skipulag og framkvæmd Startup Engergy Reykjavík er í höndum Klak Innovit og Iceland Geothermal. Startup Energy Reykjavik er unnið í samstarfi Arion banka, Landsvirkjunar, Nýsköpunarmiðstöðvar og GEORG.
Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka:
„Það er virkilega ánægjulegt að sjá hvernig Startup Reykjavík hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi. Fjöldi umsókna í Startup Reykjavík í ár endurspeglar það. Arion banki er stoltur af því að standa bæði að baki Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík, að fjárfesta beint í íslenskum frumkvöðlafyrirtækjum og vera þannig beinn stuðningsaðili við frumkvöðlaumhverfið á Íslandi.“