Barnahlaup Melabúðarinnar og Arion banka
Barnahlaup Melabúðarinnar og Arion banka fór fram miðvikudaginn 25. maí. Markmið með hlaupinu var að hvetja æskuna til hreyfingar og hollra lífshátta.
Hlaupið fór fram á grassvæðinu við Vesturbæjarlaugina og var hlaupið í þremur aldursflokkum:
- 8 ára og yngri – 400 metra hlaup
- 9-10 ára – 800 metra hlaup
- 11-12 ára – 1.200 metra hlaup
Um 250 börn komu saman og hlupu undir dyggri stjórn Anítu Hinriksdóttur frjálsíþróttakonu úr ÍR og heims- og Evrópumeistara í 800 metra hlaupi ungmenna.
Stuðningsaðilar hlaupsins voru Melabúðin og Arion banki og heppnaðist hlaupið afar vel eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.