Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa

Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa

Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa - mynd

Fimmtudaginn 19. maí útskrifuðust 29 aðilar úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa, þar af 6 starfsmenn Arion banka. Útskriftin fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólanum í Reykjavík.

Nú starfa 59 vottaðir fjármálaráðgjafar hjá Arion banka en markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem eru gerðar til fjármálaráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Námið nær meðal annars yfir þætti í fjármálum og þjóðhagfræði auk lögfræði og siðfræði. Einnig fengu nemendur þjálfun í almennri ráðgjafafærni. Náminu lauk með prófum til að staðfesta færni þátttakenda. 

Samtök fjármálafyrirtækja standa að verkefninu um vottun fjármálaráðgjafa ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Samtökum starfsfólks fjármálafyrirtækja, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.

Eftirtaldir starfsmenn Arion banka útskrifuðust þann 19. maí.

  • Ásdís Elvarsdóttir, Selfossi
  • Brynhildur Brynjúlfsdóttir, Hafnarfirði
  • Dóra Sjöfn Stefánsdóttir, Hellu
  • Herdís Birna Kristjánsdóttir, Borgarnesi
  • Ragnheiður Þengilsdóttir, Mosfellsbæ
  • Sóley Gíslína Guðgeirsdóttir, Hveragerði