Framúrskarandi fyrirtæki 2020

Framúrskarandi fyrirtæki 2020

Framúrskarandi fyrirtæki 2020 - mynd

Í 11 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði.

Við hjá Arion banka erum stolt af því að vera í samstarfi við fjölmörg fyrirtæki sem fengu þessa viðurkenningu og gleðjumst yfir verðskulduðum árangri.

Við óskum framúrskarandi íslenskum fyrirtækjum í öllum geirum um allt land til hamingju með viðurkenninguna.