Arion banki flytur starfsemi sína úr Borgartúni 18
Fyrirtækjatorg bankans opnað í höfuðstöðvunum í Borgartúni 19
Arion banki hefur flutt nær alla starfsemi úr í Borgartúni 18 yfir í höfuðstöðvar bankans í Borgartúni 19. Þar hefur nú verið opnað fyrirtækjatorg bankans sem sinnir allri almennri fyrirtækjaþjónustu fyrir fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Í Borgartúni 19 verður jafnframt tekið á móti einstaklingum sem eiga bókaðan tíma hjá ráðgjöfum bankans.
Sjálfsafgreiðslusvæðið, sem verið hefur í Borgartúni 18, flyst yfir í Nóatún 17 mánudaginn 28. des. Á þeim stað verða tveir hraðbankar þar sem hægt verður að leggja inn og taka út seðla, greiða reikninga, millifæra og enduropna PIN númer korta.
Bankahólfin verða enn um sinn staðsett í Borgartúni 18, en aðgengi að þeim verður að baka til. Sem fyrr þarf að bóka tíma á vef Arion banka til að komast í bankahólf.