Arion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum

Arion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum

Arion banki hf. lauk í dag þriðjudaginn 9. desember útboði á tveimur nýjum flokkum sértryggðra skuldabréfa til sjö og fimmtán ára. 

Í heild bárust tilboð upp á 10.340 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir samtals kr. 6.360 milljónir. Í skuldabréfaflokki til fimmtán ára var tilboðum tekið fyrir kr. 5.220 milljónir á ávöxtunarkröfunni 3,50% og í skuldabréfaflokki til sjö ára var tilboðum tekið fyrir kr. 1.140 milljónir á ávöxtunarkröfunni 3,60%. Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs. 

Stefnt er á að flokkarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi nú í desember.