Aðalfundur Arion banka 2016
Aðalfundur Arion banka 2016 var haldinn í dag, fimmtudaginn 17. mars, í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ársreikningur bankans var samþykktur. Breytingar á launum stjórnar voru samþykktar sem fela í sér 3,5% meðaltalshækkun. Einnig var starfskjarastefna bankans samþykkt óbreytt frá fyrra ári. Jafnframt var ákveðið að Deloitte ehf. gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi bankans í samræmi við ákvörðun hluthafafundar frá 6. febrúar 2015 og aðalfundar 19. mars 2015. Ákveðið var að greiða ekki út arð.
Á fundinum voru eftirfarandi endurkjörnir í stjórn bankans: Benedikt Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Guðrún Johnsen, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Monica Caneman og Þóra Hallgrímsdóttir. Konur skipa því áfram meirihluta stjórnar, eru fjórar af sjö stjórnarmönnum. Kirstín er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.
Varamenn í stjórn bankans voru einnig endurkjörnir. Varamenn eru: Björg Arnardóttir, Sigurlaug Ásta Jónsdóttir og Ólafur Örn Svansson.
Skýrsla stjórnar 2015
Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka, flutti skýrslu stjórnar. Monica sagði árið 2015 hafa verið gott ár í starfsemi bankans. Arðsemi ársins nam 28,1% og markast hún af traustum grunnrekstri bankans en einnig af óreglulegum liðum sem höfðu umtalsverð jákvæð áhrif. Regluleg starfsemi bankans gekk vel á árinu og skilaði ásættanlegri arðsemi eiginfjár, eða 10,4%, á sama tíma og eigið fé bankans er hátt, eða um 193 milljarðar króna.
Monica ræddi að verkefni stjórnar og starfsfólks Arion banka á undanförnum árum hafi verið að byggja upp góðan banka sem væri vænlegur fjárfestingarkostur fyrir langtímaeigendur. Að mörgu hafi þurft að huga og árangurinn hafi verið góður. Í dag væri Arion banki öflugt fjármálafyrirtæki, með traustan viðskiptamannagrunn, öflugt starfsfólk og sterka stöðu á þeim mörkuðum sem bankinn starfar á. Bankinn stæði traustum fótum með eiginfjárhlutfall upp á 24,2% og vogunarhlutfall upp á 16,7%. Monica kom einnig inn á að á þessum árum frá stofnun bankans hafi íslenskt efnahagslíf styrkst til mikilla muna. Hagvöxtur undanfarinna ára hafi verið góður, kaupmáttur aukist og verulega dregið úr atvinnuleysi. Einnig hafi skuldir einstaklinga, fyrirtækja og ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu lækkað umtalsvert. Þannig hafi góður árangur náðst í íslensku fjármála- og efnahagslífi á undanförnum árum.
Monica ræddi aðgerðir sem gripið var til innan bankans, m.a. að frumkvæði stjórnar, til að bregðast við gagnrýni bæði frá FME og almenningi á árinu 2015. Ferlum hafi m.a. verið breytt til að styrkja ákvarðanatöku. Einnig hafi regluvarsla bankans verið efld og skýrar kveðið á um aðkomu stjórnar að ýmsum málum. Hún sagði ljóst að umræða undanfarinna mánaða um einstök fjármálafyrirtæki og fjármálakerfið í heild sýndi vel mikilvægi þess að fjármálafyrirtæki sýndu varfærni í öllum sínum verkum vildu þau ávinna sér traust.
Í máli sínu kom Monica inn á að nú styttist í afnám fjármagnshafta og að þar með myndi einum mikilvægasta kafla endurreisnar íslensks efnahagslífs ljúka. Í þessu samhengi ræddi Monica að eitt af þeim verkefnum sem unnið hafi verið að innan bankans frá árinu 2010 væri að búa bankann undir afnám gjaldeyrishafta, því það hafi verið ljósti strax í upphafi að Arion banki yrði að vera það fjárhagslega sterkur að aldrei kæmi til þess að hann stæði í vegi fyrir afnámi hafta. Sagði Monica bankann um árabil hafa verið vel undir afnám hafta búinn.
Viðburðaríkt ár
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, fór yfir uppgjör bankans á árinu 2015. Afkoma bankans var góð en einskiptisatburðir höfðu mjög jákvæð áhrif á uppgjör ársins. Grunnrekstur bankans helt áfram að eflast en á árinu styrkti bankinn stöðu sína á öllum helstu mörkuðum sem hann starfar á. Höskuldur sagði góðan vöxt hafa verið í lánum til fyrirtækja og í eignastýringu bankans. Einnig hafi það verið ánægjulegt að á árinu opnaði Arion banki nýtt útibú á Siglufirði og fékk bankinn hæstu einkunn í samkeppni um fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem bankinn mun opna útibú 1. maí næstkomandi.
Höskuldur fór yfir þá einskiptisatburði sem einna helst settu mark sitt á afkomu ársins og sagið hann árið hafa einkennst um margt af því að síðustu stóru úrlausnarverkefnin voru til lykta leidd. Fyrst og fremst er um að ræða sölu bankans á hlutum í fimm félögum: Reitum fasteignafélagi hf., Eik fasteignafélagi hf., Símanum hf., alþjóðlega drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber og Bakkavor Group Ltd. Öll voru félögin skráð í kauphöll hér á landi eða erlendis, nema eignarhluturinn í Bakkavor Group sem var seldur í kjölfar söluferlis í umsjón Barclays bankans. Allt voru þetta félög sem bankinn átti minnihluta í. Voru skráningar Reita, Eikar og Símans einu nýskráningarnar í kauphöll hér á landi á árinu. Höskuldur ræddi jafnframt þá áherslu bankans að beita sér fyrir því að félög sem bankinn hefur eignast hluti í séu, þar sem því verður við komið, skráð í kauphöll í kjölfar almenns hlutafjársútboðs. Þannig væri almenningi gefinn kostur á að taka þátt í uppbyggingu hlutabréfamarkaðar hér á landi. Í máli Höskuldar kom fram að Arion banki hafi komið að um 60% nýskráninga í kauphöll hér á landi á undanförnum árum.
Höskuldur ræddi meðal annars þann árangur sem hefði náðst við að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans. Innlán eru enn stærsti þáttur fjármögnunarinnar en með útgáfu skuldabréfa í evrum og norskum og íslenskum krónum hefur vægi annarrar fjármögnunar aukist. En á árinu varð Arion banki fyrsti íslenski bankinn í þó nokkur ár til að gefa út skuldabréf í evrum til breiðs hóps alþjóðlegra fjárfesta. Höskuldur ræddi einnig þá ánægjulegu þróun sem hefur orðið á lánshæfismati bankans en á árinu 2015 hækkaði Standard & Poors lánshæfismat bankans í fjárfestingarflokk.
Í máli Höskulds kom fram að árið 2015 hefði verið óvenju viðburðarríkt ár í sögu bankans. Ánægjulegt hafi verið að undir árslok hafi fagtímaritið The Banker, sem er gefið út af The Financial Times, valið Arion banka sem banka ársins á Íslandi.
Ræða stjórnarformanns Arion banka.pdf