Arion banki hefur lokið störfum á Keflavíkurflugvelli

Arion banki hefur lokið störfum á Keflavíkurflugvelli

Arion banki hefur lokið störfum á Keflavíkurflugvelli - mynd

Miðvikudagurinn 31. janúar var síðasti dagurinn sem Arion banki sá um að þjóna farþegum á Keflavíkurflugvelli. Við erum stolt af þeirri starfsemi sem við höfum verið með á flugvellinum síðan 2016. Frá þeim tíma höfum við lagt okkur fram um að taka vel á móti öllum þeim sem fara um flugvöllinn og hefur starfsfólk okkar staðið sig frábærlega, á stundum við krefjandi aðstæður.

Arion banki sendi inn metnaðarfullt tilboð varðandi áframhaldandi fjármálaþjónustu en niðurstaða Isavia var sú að annar rekstraraðili varð fyrir valinu og hefur sá aðili nú tekið við fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli.

Við þökkum fyrir okkur og óskum nýjum rekstraraðila velfarnaðar í störfum sínum.