15. apríl 2016
Study Cake - bækur í áskrift fyrir börn og unglinga
Íslenska sprotafyrirtækið Study Cake gaf í gær út fyrsta íslenska rafbókastreyminn sem er sérhannaður fyrir börn og unglinga. Nú geta fjölskyldur skráð sig í áskrift og lesið allt að þrjár bækur á mánuði gegn gjaldi.
Það er gaman að segja frá því að Study Cake var eitt þeirra tíu teyma sem fóru í gegnum Startup Reykjavík árið 2015 með góðum árangri.
Hér má lesa frétt um velgengni þessara flottu frumkvöðla á mbl.is.