13. ágúst 2014
Startup Reykjavík – Síðasta fimmtudagsgrill sumarsins
Fimmtudaginn 14. ágúst frá kl. 17-19 verður þriðja og síðasta fimmtudagsgrill sumarsins í Startup Reykjavík haldið.
Fimm af teymunum tíu sem taka þátt í ár munu kynna hugmyndir sínar stuttlega fyrir gestum en að því loknu verður boðið upp á grillaða hamborgara, pylsur og meðlæti. Sérstakir grillmeistarar munu standa við grillið og grilla kræsingarnar ofan í gesti og gangandi. Þetta er fullkomið tækifæri til að kynnast fyrirtækjunum í Startup Reykjavík og að kynnast því sem er að gerast í íslensku frumkvöðlaumhverfi.Startup Reykjavík er á 2. hæð í húsnæði Arion banka á Hlemmi, gengið inn að aftanverðu.
Startup Reykjavik er viðskiptahraðall (e. business accelerator) sem árlega fjárfestir í 10 viðskiptahugmyndum. Markmiðið er að skapa umgjörð þar sem þátttakendur njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum viðskiptahugmydum. Startup Reykjavik er samstarfsverkefni Arion banka og Klak Innovit.
Tíu fyrirtæki eru valin úr hópi umsækjenda og mun Arion banki fjárfesta í hverju þeirra fyrir tvær milljónir gegn 6% eignarhlut.
Að auki fá þátttakendur:
- 2.000.000 í fjárfestingu fyrir 6% eignarhlut
- Sameiginlegt skrifstofurými í 10 vikur
- Ráðgjöf frá meira en 50 leiðbeinendum (mentors)
- Leiðsögn og aðstoð við að byggja upp viðskiptahugmynd
- Endurgjöf á viðskiptamódel fyrirtækisins
- Aðgang að fjölda viðburða til að virkja tengslanetið
- Tækifæri til þess að kynna viðskiptahugmyndina fyrir fjárfestum
Allir eru velkomnir á viðburðinn.