Aðalfundur Arion banka 2015
Aðalfundur Arion banka 2015 var haldinn síðdegis í dag, fimmtudaginn 19. mars, í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ársreikningur bankans var samþykktur. Breytingar á launum stjórnar voru samþykktar sem fela í sér 2,75% meðaltalshækkun. Einnig var starfskjarastefna bankans samþykkt óbreytt frá fyrra ári. Jafnframt var ákveðið að Deloitte ehf. gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi bankans í samræmi við ákvörðun hluthafafundar frá 6. febrúar 2015.
Á fundinum voru eftirfarandi endurkjörnir í stjórn bankans: Benedikt Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason, Guðrún Johnsen, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Monica Caneman og Þóra Hallgrímsdóttir. Þannig skipa konur áfram meirihluta stjórnar, eru fjórar af sjö stjórnarmönnum. Kirstín er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.
Af þremur varamönnum í stjórn eru tvær konur, en varamenn í stjórn bankans voru einnig endurkjörnir. Varamenn eru: Björg Arnardóttir, Sigurlaug Ásta Jónsdóttir og Ólafur Örn Svansson.
Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar um að greiða út arð sem nemur um 45% af hagnaði bankans eða 12,8 milljörðum króna vegna ársins 2014.
Skýrsla stjórnar 2014
Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka, flutti skýrslu stjórnar þar sem hún lagði meðal annars áherslu á að starfsemi bankans hafi gengið vel á árinu 2014 og afkoma hafi verið góð. Monica ræddi sérstaklega að eitt af stóru verkefnunum fjármálakerfisins á Íslandi væri að auka hagræði í rekstri og búa í haginn fyrir framtíðina. Ræddi hún þann árangur sem náðst hefur á undanförnum árum á þessu sviði innan Arion banka en einnig að metnaðarfull verkefni væru í gangi innan bankans með það að markmiði að auka hagræði enn frekar.
Monica ræddi mikilvægi þess að afnám gjaldeyrishafta myndi hefjast sem fyrst. Margt í umhverfinu væri þess eðlis að rétti tíminn til afnáms hafta væri núna. Meðal þess sem hún nefndi í þessu samhengi eru jákvæðar aðstæður í efnahagslífinu og sá árangur sem þegar hefur náðst við að létta á snjóhengjunni svokölluðu. Monica benti einnig á að vaxtastig í Evrópu sé lágt um þessar mundir og ekki heiglum hent fyrir evrópska fjárfesta að fá góða ávöxtun. Monica telur að höftin torveldi margvísleg viðskipti íslenskra fyrirtækja við erlenda viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila og hreki jafnvel öflug fyrirtæki sem styrkja íslenskt efnahags- og atvinnulíf úr landi.
Í máli sínu kom Monica einnig inn á umræðu sem átt hefur sér stað hér á landi um vexti og vaxtamun. Benti hún á að vaxtamunur Arion banka af vaxtaberandi eignum hafi lækkað um 0,6 prósentustig frá árinu 2012. Einnig að þegar verið sé að bera saman vaxtamun banka hér á landi og banka erlendis þá sé rétt að horfa til banka sem séu sambærilegir að stærð og þeir íslensku. Sé það gert sést að vaxtamunur á Íslandi er á svipuðum slóðum og í mörgum af þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við.
Einnig kom Monica Caneman inn á mikilvægi þess að gæta hófs í skattlagningu. Sagði Monica að skattar sem ekki legðust á tekjur eða afkomu væru óæskilegir. Til dæmis fæli skattlagning á skuldir bankans einfaldlega í sér aukningu á fjármögnunarkostnaði bankans. Einnig lagði hún áherslu á að á Íslandi væru alþjóðlegar reglur innleiddar og að íslensk fjármálafyrirtæki þyrftu ekki að lúta sértækum reglum á heimamarkaði sem fjármálafyrirtæki í nágrannalöndum Íslands gera ekki, því slíkar sérreglur drægju úr samkeppnishæfni íslenskra banka.
Gott ár að baki
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, fór yfir uppgjör bankans á árinu 2014. Í máli hans kom fram að afkoma bankans hafi góð á árinu og arðsemi tæp 19%. Árangur hefði verið umfram væntingar á öllum helstu sviðum bankans. Eins og undanfarin ár þá hefði regluleg starfsemi bankans einkennst af stöðugleika. En Höskuldur ræddi einnig að óreglulegir liðir hefðu haft jákvæð áhrif á uppgjörið og þá sérstaklega sala á hlut í HB Granda og vel heppnuð skráning félagsins á aðalmarkað kauphallar.
Í máli sínu lagði Höskuldur áherslu á að fjárhagslegur styrkur Arion banka væri mikill og að eiginfjárhlutfall upp á rúm 26% bæri þess vitni sem og sterk lausafjárstaða.
Höskuldur ræddi gott jafnvægi í lánabók bankans sem skiptist með jöfnum hætti á milli lána til einstaklinga annars vegar og fyrirtækja hins vegar. En árið 2010 námu lán til einstaklinga aðeins um 25% af lánasafni bankans, makvisst hefur verið unnið að því að ná þessu jafnvægi á undanförnum árum. Einnig ræddi Höskuldur bætt gæði lánasafnsins bankans en vandræðalán eru í dag 4,4% af lánum bankans sem er mikil breyting frá því fyrir nokkrum árum.
Hvað fjármögnun bankans varðar þá hefur verið unnið að því að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans með góðum árangri. Nýleg skuldabréfaútgáfa bankans í evrum var mjög mikilvægur áfangi hvað þetta varðar. En um er að ræða stærstu erlendu skuldabréfaútgáfu íslensks banka í fjölmörg ár.
Höskuldur ræddi einnig þá miklu breytingu sem er að eiga sér stað í bankaþjónustu, einkum á sviði viðskiptabankaþjónustu. Hið vinsæla Arion banka app fyrir snjallsíma gerir bankann aðgengilegan viðskiptavinum alla daga, allan sólarhringinn og nánast hvar sem er. Höskuldur sagði breytingarnar nú í raun vera hraðari en þegar netbankinn ruddi sér til rúms fyrir hartnær tveimur áratugum. Samhliða breyttu neyslumynstri sagði Höskuldur bankann hafa breytt áherslum í útibúum sínum og aðlagað betur að nútíma þörfum viðskiptavina sinna. Í nýju útibúi sem opnað var á árinu gegnt höfuðstöðvum bankans í Borgartúni í Reykjavík var m.a. kynnt ný kynslóð hraðbanka sem býður upp á að framkvæma mun fleiri aðgerðir en áður. Í útibúum Arion banka er nú einnig lögð aukin áhersla á einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu þegar kemur að stóru og mikilvægu málunum í lífi fólks, eins og sparnaði, íbúðakaupum og lífeyrismálum.
Meðfylgjandi er afrit af ræðu Monicu Caneman, stjórnarformanns Arion banka, sem hún fluttu á aðalfundi bankans í dag.
Ræða stjórnarformanns Arion banka