Útibú Arion banka loka klukkan 15:30 í dag – Áfram Ísland!

Útibú Arion banka loka klukkan 15:30 í dag – Áfram Ísland!

Það hefur ekki farið framhjá neinum að strákarnir okkar í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta mæta liði Austurríkis í dag í lokaleik F riðils Evrópumótsins í knattspyrnu. Strákarnir eru ósigraðir í keppninni og riðillinn galopinn. Leikurinn mun skera úr um hvort landsliðið er á heimleið eða á leið í 16 liða úrslit.

Til að sýna strákunum stuðning munum við loka útibúum Arion banka um land allt kl. 15:30 í dag.

Þjónustuver Arion banka verður opið eins og venjulega. Símanúmer þjónustuvers er 444 7000.

Áfram Ísland!