Arion banki breytir vöxtum
Í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu óverðtryggðir inn- og útlánavextir Arion banka taka eftirfarandi breytingum:
Íbúðalán
- Óverðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 10,64%
- Óverðtryggðir fastir vextir lækka um 0,6 prósentustig og verða 8,8%
Bílalán
- Kjörvextir bílalána lækka um 0,25 prósentustig
Kjörvaxtalán
- Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,25 prósentustig
Yfirdráttarlán
- Yfirdráttavextir lækka um 0,25 prósentustig
Innlán
Óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga lækka um allt að 0,35 prósentustig. Innlánsvextir veltureikninga eru óbreyttir. Vextir reikninga í erlendri mynt lækka um allt að 0,76 prósentustig, mismunandi eftir myntum og þeim breytingum sem átt hafa sér stað á stýrivöxtum viðkomandi lands.
Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.
Öll ný útlán bera nýju vextina frá og með 8. október. Breytingar á vöxtum inn- og útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.