Fjárfestadagur Startup Reykjavík haldinn í fjórða sinn í Arion banka
Startup Reykjavík, viðskiptahraðall Arion banka í samstarfi við Klak Innovit, mun á morgun, 28. ágúst, halda sinn árlega fjárfestadag. Viðburðurinn fer fram í höfuðstöðvum Arion banka og hefst kl. 9:00. Á fjárfestadeginum verður fjárfestum og öðrum gestum boðið að kynnast verkefnum fyrirtækjanna sem tóku þátt í ár. Markmið Startup Reykjavík er að skapa umgjörð þar sem athafnafólk nýtur ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum viðskiptatækifærum. Er þetta í fjórða sinn sem slíkur dagur er haldinn.
Startup Reykjavík verkefnið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi en verkefni sem þessi hafa notið mikilla vinsælda og virðingar víða um heim hjá fjárfestum og fyrirtækjum sem eru að stíga sín fyrstu skref. Startup Reykjavík hlaut viðurkenningu sem besti viðskiptahraðall Norðurlanda á Nordic Startup Awards fyrr á þessu ári. Tíu fyrirtæki taka þátt í Startup Reykjavík hverju sinni og stendur verkefnið yfir í tíu vikur. Fyrirtækin fá sameiginlega skrifstofuaðstöðu, aðstoð og leiðbeiningar frá tugum mentora auk þess sem Arion banki leggur hverju og einu fyrirtæki til 2 milljónir í hlutafé gegn 6% eignarhlut.
Fyrirtækin sem kynna á fjárfestadaginn eru:
DatadriveHugbúnaður sem safnar upplýsingum frá bílum og sendir í snjallsíma eigandans. |
DelphiNýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni. |
ElsendiaSamtvinnar rafræn skilríki og rafræna lyfseðla. Lyf keypt á netinu og send til viðtakanda með öruggum hætti. |
Genki instrumentsÞróa raftónlistarhljóðfæri sem tengjast með áður óséðum hætti. |
Hún / Hann brugghúsÖrbrugghús með frumlega gæðabjóra í takmörkuðu upplagi. |
LudisÞróa leikjavettvang sem byggir á samskiptum á milli sjónvarps og síma. |
Spor í sandinnSjálfbær gróðurhús tengd sundlaugum borgarinnar. Sala staðbundinna matvæla, nýjung í ferðaþjónustu, fræðslu og afþreyingu. |
Study CakeVettvangur fyrir nemendur og kennara þar sem heimavinnan er gerð skemmtilegri og árangur mælanlegri. |
Viking CarsMarkaðstorg þar sem hægt er að deila bílum með öruggri yfirstjórn. Airbnb fyrir bíla. |
Wasabi IcelandHágæða wasabiræktun á Íslandi með hreinu vatni og endurnýjanlegri orku. |
Auk þeirra munu fyrrum þátttakendur kynna fyrirtækin sín eins og þau standa í dag.