Engar viðskiptaþóknanir eða lágmarkskaup í sjóðum Stefnis
Stefnir hefur fellt niður þóknanir vegna viðskipta í sjóðum félagsins þegar viðskipti eiga sér stað í gegnum Arion appið eða netbanka. Þannig geta viðskiptavinir keypt- eða selt í sjóðum Stefnis án viðskiptaþóknana. Kjósi þeir hins vegar að framkvæma viðskiptin í gegnum síma eða í útibúi þá er tekið afgreiðslugjald. Jafnframt er ekki lengur gerð krafa um lágmarksupphæð viðskipta í stökum sjóðum eða í áskrift óháð því hvernig viðskiptin eiga sér stað. Þannig er nú hagkvæmara og einfaldara en nokkru sinni að spara með því að fjárfesta í sjóðum Stefnis eða með því að hefja reglulegan sparnað í gegnum áskrift með stafrænum hætti.
Stefnir hefur upp á að bjóða eitt fjölbreyttasta sjóðaúrval hér á landi. Allir sem vilja ávaxta fé sitt ættu að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem það eru skuldabréfasjóðir, innlendir eða erlendir hlutabréfasjóðir, blandaðir sjóðir eða sérhæfðir sjóðir á sviði sjálfbærni. Þar sem ekki er gerð krafa um lágmarksupphæð þá getur hver og einn fjárfest fyrir þá upphæð sem hentar best, hvort sem hún er stór eða smá.
Jafnframt eru kaup á hlutabréfum einstakra félaga sem skráð eru á markað hér á landi hagstæðust í Arion appinu og netbanka þegar fjárfest er fyrir lægri upphæð en 250 þúsund krónur.
Markmið Arion er að auðvelda fólki að spara með því að bjóða upp á fjölbreytta og ódýra valkosti sem henta áhættuvilja hvers og eins og eru aðgengilegir í Arion appinu og netbanka, eins og innlán, hlutabréf og sjóði.