Arion banki býður til fræðslufundar um húsnæðismarkaðinn, þriðjudaginn 26. nóvember í Borgartúni 19.
Fundurinn er opinn öllum og verður honum einnig streymt á Facebook.
Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion, flytur opnunarávarp. Kári S. Friðriksson, hagfræðingur, fjallar því næst um húsnæðismarkaðinn.
Að lokum fer Jarþrúður Birgisdóttir í saumana á öllu sem viðkemur endurfjármögnun. Að auki ræðir hún breytilega og fasta vexti, verðtryggð og óverðtryggð lán og muninn á jöfnum greiðslum og jöfnum afborgunum.
Dagskrá hefst klukkan 17.00 og stendur til 18.00.