Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Afkoma fyrsta ársfjórðungs er undir markmiðum okkar. Lægri afkoma nú skýrist fyrst og fremst af lægri þóknanatekjum og háu skatthlutfalli þar sem tap vegna hlutabréfa sem haldið er gegn framvirkum samningum leiðir til 38% skatthlutfalls á fjórðungnum. Eiginfjár- og lausafjárstaða er áfram mjög sterk sem og fjármögnun bankans. Við vinnum nú að því að ná markmiðum okkar varðandi hlutfall eiginfjárþáttar 1. Í lok tímabilsins var hlutfallið 18,8% sem er 3,5 prósentustigum yfir kröfum eftirlitsaðila en markmið okkar er að vera 1,5-2,5 prósentustigum yfir þeirra kröfum. Í gangi er endurkaupaáætlun sem er liður í því að færa hlutfallið nær markmiði okkar.
Við sjáum að nokkuð hefur hægst á umsvifum í efnahagslífinu í ljósi hárra stýrivaxta og er það eitt af því sem hefur áhrif til lækkunar á þóknanatekjum tímabilsins. Við lokuðum einnig þjónustu okkar á Keflavíkurflugvelli í lok janúar, í kjölfar útboðs ISAVIA, eftir að hafa verið með starfsemi á flugvellinum frá árinu 2016. Við erum stolt að þeirri þjónustu sem við buðum gestum flugvallarins á þessum viðburðaríku árum. Starfsfólk okkar lagði sig fram um að taka vel á móti öllum þeim sem fóru um flugvöllinn og stóð sig frábærlega, á stundum við krefjandi aðstæður.
Nýverið keypti nýr sjóður á vegum Stefnis, dótturfélags Arion banka, Heimstaden á Íslandi. Um er að ræða stærsta íbúðaleigufélag landsins en félagið á um 1.600 íbúðir hér á landi. Nær allir lífeyrissjóðir landsins koma að sjóðnum sem er um 40 milljarðar að stærð. Markmið sjóðsins er að stuða að uppbyggingu íbúðahúsnæðis hér á landi og tvöfalda fjölda íbúða í eigu félagsins fyrir árið 2030. Það er mjög ánægjulegt hve vel tókst til við stofnun sjóðsins og hve breið þátttaka lífeyrissjóða er í þessu mikilvæga verkefni.“
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 2. maí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.
Q1 2024 - Press release Arion Bank
Arion Bank Investor Presentation Q1 2024
Arion Bank - Condensed Consolidated Interim Financial Statements 31 March 2024
Fyrirvari
Tilkynning þessi inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi viðhorf stjórnenda um framtíðina og mögulegan fjárhagslegan árangur. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þeir þættir sem mikilvægastir eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka eru meðal annars eftirfarandi: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbólgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnisumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Tilkynning þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem þegar liggur fyrir um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum, ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er tilkynning þessi var birt. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að afrita, breyta, endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.