Við innleiðum nýtt greiðslu- og innlánakerfi
Upplýsingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Skerðing verður á þjónustu
helgina 16. - 18. apríl
Við innleiðingu nýs kerfis er óhjákvæmilegt að á ákveðnum tímapunktum verði röskun á þjónustu bankans. Við höfum gert hvað við getum til að lágmarka truflunina en ekki verður komist hjá eftirfarandi:
- Arion appið og netbankinn munu liggja niðri í 2-4 klst. sunnudaginn 18. apríl.
- Tímabundin truflun á notkun debetkorta getur orðið sunnudaginn 18. apríl en að öðru leyti ætti notkun debet- og kreditkorta að vera í lagi.
- Truflanir geta orðið á hraðbönkum og gjafakortahraðbanki í Kringlunni verður lokaður.
Við hvetjum viðskiptavini til að skoða tilkynningar í netbanka þar sem finna má breytingar á skilmálum bankans í tengslum við innleiðingu nýs kerfis.
Nánar um skerðingu á þjónustu
í Arion appinu og netbanka
Millifærslur
Hægt verður að millifæra í netbanka Arion banka, Arion appinu og af reikningum í netbönkum annarra banka eða sparisjóða.
Upplýsingar um millifærslur og greiðslur til og frá Arion banka sem framkvæmdar eru frá miðnætti aðfaranótt laugardags til sunnudagskvölds verða ekki sýnilegar að fullu í kerfum Arion banka en verða sýnilegar í öðrum bönkum.
Greiðsla með debetkortum
Hægt verður að nýta upphæðir sem millifærðar eru á reikninga með því að greiða með debetkortum og taka þær út í hraðbanka en þar sem að reikningsyfirlit uppfærist ekki verður ekki hægt að millifæra þessar upphæðir yfir á aðra reikninga fyrr en sunnudagskvöldið 18. apríl þegar innleiðingunni er lokið og kerfi hjá öllum bönkum sýna rétt yfirlit.
Aðrar aðgerðir sem ekki verður
hægt að framkvæma yfir helgina
- Stofna reikninga eða breyta reikningum í netbanka og appi
- Stofna, breyta eða fella niður yfirdráttarheimild
- Stofna, breyta eða eyða beingreiðslusamningum
- Panta úttekt á sparnaðarreikningnum Vexti 30
- Greiða inn á kreditkort
- Greiða gíróseðla
- Panta debetkort
- Stofna til viðskipta
Upplýsingar um ógreidda reikninga uppfærast ekki, þ.e. þegar reikningur er greiddur birtast þær upplýsingar ekki fyrr en innleiðingunni er lokið sunnudagskvöldið 18. apríl. Engu að síður verður hægt að greiða reikninga.
Frá og með sunnudagskvöldinu 18. apríl eiga upplýsingar í öllum kerfum bankanna að vera réttar.