Við innleiðum nýtt greiðslu- og innlánakerfi
Upplýsingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Skerðing verður á þjónustu
helgina 16. - 18. apríl
Á meðan á innleiðingunni stendur getur orðið þjónusturof í ákveðnum kerfum fyrir fyrirtæki og einstaklinga í fyrirtækjarekstri. Helstu kerfi sem verða lokuð eru:
- Greiðslubunkakerfi
- B2B vefþjónusta
- Samþykktarferli í netbanka
Við biðjum því viðskiptavini um að klára að greiða alla greiðslubunka eigi síðar en föstudaginn 16. apríl kl. 17.00 til þess að þeir fari í gegn. Einnig þarf að passa að engar greiðslur séu í samþykktarferli.
Vinsamlega athugið eftirfarandi:
- Öllum opnum greiðslubunkum (bunkar í vinnslu) verður eytt séu þeir ógreiddir eftir kl. 17.00 föstudaginn 16. apríl.
- Ekki má vera með framvirkan greiðslubunka virkan eftir kl. 17.00 föstudaginn 16. apríl þar sem þeir munu eyðast.
- Greiðslubunkar sem greiddir eru að fullu, eða greiddir og stök færsla lendir á villu, verða aðgengilegir í Greiðslubunkakerfi netbankans mánudaginn 19. apríl.
Þjónusturof
sunnudaginn 18. apríl
Eftirfarandi þjónusturof verður í 2-4 klst. um hádegisbil sunnudaginn 18. apríl.
Lokað verður fyrir þjónustusímann, netbanka fyrirtækja og B2B þjónustu.
Tímabundnar truflanir geta orðið á notkun debetkorta en ekki verður truflun á notkun kreditkorta og innkaupakorta.
Truflanir geta verið á virkni hraðbanka.
Aðrar aðgerðir sem ekki
verður hægt að framkvæma yfir helgina
- Ekki verður hægt að stofna, breyta eða eyða beingreiðslusamningum
- Ekki verður hægt að panta úttekt á sparnaðarreikningnum Vexti 30
- Ekki verður hægt að greiða gíróseðla
- Ekki verður hægt að stofna til viðskipta
- Nettunarþjónusta í netbanka fyrirtækja verður óvirk
Upplýsingar um ógreidda reikninga uppfærast ekki, þ.e. ef að reikningur er greiddur birtast þær upplýsingar ekki fyrr en á sunnudagskvöldið 18. apríl. Engu að síður verður hægt að greiða reikninga.