Fjölbreytt úrval sjóða
fyrir fagfjárfesta

Sala og þjónusta fagfjárfesta er skipuð starfsfólki með víðtæka reynslu á sviði sjóðastýringar og lífeyrismála.

Fyrir frekari upplýsingar eða samskipti er hægt að hafa samband í gegnum netfangið amsales@arionbanki.is.

Þjónusta við fagfjárfesta


Fagleg og skipulögð
vinnubrögð

Við bjóðum fagfjárfestum einfalt aðgengi að leiðandi sjóðastýringarfyrirtækjum með fjölbreyttu úrvali sjóða.


Samstarf við alþjóðleg sjóðastýringarfyrirtæki

Í samstarfi við innlend og alþjóðleg sjóðastýringarfyrirtæki bjóðum við fagfjárfestum aðgang að fjölbreyttu úrvali sjóða í öllum helstu eignaflokkum.


Tryggjum framúrskarandi
þjónustu

Með þessu samstarfi tryggjum við einfalt og skilvirkt aðgengi að fjölbreyttum fjárfestingarkostum, hagstæðum kjörum og sérsniðinni þjónustu fyrir okkar viðskiptavini.

Samstarf við alþjóðleg sjóðastýringarfyrirtæki

Stefnir

Stefnir er eitt stærsta og rótgrónasta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1996. Stefnir þjónustar jafnt einstaklinga sem fagfjárfesta og leggur mikla áherslu á ábyrga stýringu fjármuna í eigu viðskiptavina.

Frá upphafi hefur Stefnir verið leiðandi í þróun nýrra sjóða og fjárfestingarleiða á íslenskum fjármálamarkaði. Stefnir býður fjölbreytt úrval sjóða sem henta mismunandi fjárfestum, allt frá hefðbundnum verðbréfasjóðum til sérhæfðra fagfjárfestasjóða.

Montanaro Asset Management

Montanaro Asset Management er breskt sjóðastýringarfélag stofnað árið 1990.  

Félagið leggur áherslu á að fjárfesta í litlum og meðalstórum fyrirtækjum með það að markmiði að finna hágæða fyrirtæki til að fjárfesta í til langs tíma. Félagið leggur einnig ríka áherslu á sjálfbærni og gerir kröfu um að þau fyrirtæki sem fjárfest er í fylgi háum ESG stöðlum. 

Fidelity International

Fidelity International er alþjóðlegt sjóðastýringarfyrirtæki stofnað árið 1969.  

Félagið leggur mikla áherslu á að skila sjálfbærri ávöxtun til viðskiptavina, samhliða því að fjárfestingin hafi jákvæð áhrif á samfélag og umhverfi. Sérstök áhersla er lögð á að styðja við þau fyrirtæki sem fjárfest er í, þannig að þau starfi á sjálfbæran hátt. Félagið leggur jafnframt áherslu á sérhæfingu í virkum og sértækum sjóðum.  

State Street Investment Management

State Street Investment Management, stofnað árið 1978, er meðal fremstu sjóðastýringarfyrirtækja heims.

Frá stofnun hefur félagið lagt áherslu á fagmennsku, nýsköpun og trausta þjónustu. Félagið býður upp á fjölbreyttar fjárfestingarleiðir sem miða að því að styðja við langtímaárangur viðskiptavina með markvissri eignadreifingu og áhættustýringu.

J.P. Morgan Asset Management

J.P. Morgan Asset Management er leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki frá Bandaríkjunum sem stofnað var árið 1871.

Félagið býður upp á fjölbreytt úrval fjárfestingarleiða og hefur sérfræðinga starfandi á öllum helstu mörkuðum heims. Félagið leggur áherslu á að veita frammúrskarandi lausnir og innsýn sem styðja viðskiptavini í að ná fjárhagslegum markmiðum sínum.

Sérhæfðir sjóðir

Í gegnum dótturfélag okkar Arion (Financial) Advisory services Ltd. bjóðum við upp á fjölbreytt úrval sérhæfðra sjóða.  

Sjóðir sem boðið er upp á eru AlpInvest, BGO SCP, LCN, Bonaccord, Carlyle Credit, J Safra Sarasin & Sarasin Partners og fleiri.  

Sérfræðingar okkar


Forstöðumaður

Snædís Ögn Flosadóttir

snaedis.flosadottir@arionbanki.is

Sérfræðingur

Trausti V. Gunnlaugsson

trausti.gunnlaugsson@arionbanki.is

Sérfræðingur

Bjarni Brynjólfsson

bjarni.brynjolfsson@arionbanki.is

Sérfræðingur

Friðrik Nikulásson

fridrik.nikulasson@arionbanki.is