Arion banki styrkir Sjávarútvegsráðstefnuna 2018
Sjávarútvegsráðstefnan 2018 verður haldin í Hörpu dagana 15.-16. nóvember. Arion banki er einn af aðal styrktaraðilum ráðstefnunnar í ár en bankinn sérhæfir sig í lausnum fyrir sjávarútveginn á sviði fjármögnunar, gjaldmiðlalausna og fyrirtækjaráðgjafar.
Að þessu tilefni hefur starfsfólk bankans greint nokkur brýn málefni í sjávarútveginum og verða niðurstöðurnar kynntar á málstofu þar sem einnig verður boðið upp á pallborðsumræður með aðilum úr greininni og atvinnulífinu. Tilgangur ráðstefnunnar er að stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg og vera vettvangur fyrir samskipti á milli þeirra fjölmörgu aðila sem koma að sjávarútvegi á Íslandi.
Erindi á vegum Arion banka
Krónan og sjávarútvegurinn
Fjallað verður um sögu íslensku krónunnar og sjávarútvegsins en hér áður fyrr stóð sjávarútvegurinn fyrir stærstum hluta útflutningstekna landsins. Nú hefur ákveðin kerfisbreyting átt sér stað með vexti ferðaþjónustunnar sem hefur sett þrýsting á krónuna. Gengisáhættan sem sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir felst annars vegar í áhrifum á efnahagsreikning og hins vegar í áhrifum á rekstur sem byggir á því hversu hátt hlutfall rekstrarkostnaðar er í erlendri mynt.
Erna Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka
Fjárfesting í landvinnslu
Í erindinu verður farið yfir fjárfestingu í landvinnslu og horft til fjárfestingarþarfar og lík¬legrar þróunar. Erindið verður stutt en samhliða verður ítarlegri greining gefin út af Arion banka. Í framhaldi kynningarinnar verða panelumræður við hagaðila.
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Arion banka
Hlutabréfamarkaðurinn og sjávarútvegurinn – er forsenda til frekari skráninga?
Í kringum aldamótin 2000 voru yfir 20 íslensk sjávarútvegsfyrirtæki skráð í Kauphöll. Í dag er aðeins eitt félag sem stundar veiðar og vinnslu skráð í Kauphöll og eitt sem stundar áframvinnslu og sölu á sjávarafurðum. Í þessu erindi er leitast við að varpa ljósi á það hvort til staðar séu forsendur til skránin¬ga íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöll á nýjan leik.
Ásmundur Gíslason, sérfræðingur hjá fyrirtækjaráðgjöf Arion banka
Meðfylgjandi er viðtal, sem birtist í fylgiblaði Viðskiptablaðsins um Sjávarútvegsráðstefnuna, við Guðmund S. Ragnarsson, forstöðumann á fyrirtækjasviði, og Svein Gíslason, sviðsstjóra fyrirtækja á viðskiptabankasviði Arion banka. Þar ræða þeir meðal annars þjónustu bankans við sjávarútvegsgeirann og framtíðarsýn.
Nánari upplýsingar og skráningu á Sjávarútvegsráðstefnuna 2018 má finna hér.
Viðtal við Guðmund S. Ragnarsson