Hagnaður Arion banka nam 6.131 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2023 og 19.513 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Arðsemi eiginfjár var 12,9% á ársfjórðungnum og 13,9% á fyrstu níu mánuðum ársins.
Heildareignir námu 1.541 ma.kr. í lok september, samanborið við 1.466 ma.kr. í árslok 2022. Lán til viðskiptavina jukust um 5,4% frá áramótum. Aukningin nam 7,9% í lánum til fyrirtækja og 3,3% í lánum til einstaklinga, aðallega íbúðalán. Aukning í innlánum frá viðskiptavinum var 6,7% á fyrstu níu mánuðum ársins. Heildar eigið fé nam 193 mö.kr. í lok september. Eigið fé hækkaði frá áramótum vegna afkomu fyrstu níu mánaða ársins en á móti koma arðgreiðsla og endurkaup á hlutabréfum bankans að fjárhæð 15,6 ma.kr.
Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 24,4% í lok september og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,4%. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar tímabilsins að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 24,1% í lok september og hlutfall eiginfjárþáttar 1 19,0%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Afkoma bankans á þriðja ársfjórðungi var í samræmi við okkar markmið og ef horft er til fyrstu níu mánaða ársins þá erum við að ná öllum helstu rekstrarmarkmiðum. Við erum með óvenju fjölbreytt þjónustuframboð sem felur í sér dreifða tekjumyndun og ásamt áherslu okkar á skilvirkni þá skilar það sér í stöðugum og traustum rekstri. Eiginfjárstaða bankans er áfram sterk sem og lausafjárstaða og voru þessir þættir meðal þess sem lánshæfismatsfyrirtækið Moody‘s horfði til þegar það hækkaði nýverið lánshæfiseinkunn Arion banka í flokk A-3.
Í rökstuðningi sínum nefndi Moody‘s einnig samþættingu okkar á banka- og tryggingastarfsemi. Það hefur einmitt verið ánægjulegt hversu vel samstarf Arion banka og Varðar hefur gengið síðasta árið. Saman leitum við stöðugt leiða til að samþætta þjónustuna þannig að hún nýtist viðskiptavinum okkar sem best og það fer ekki á milli mála að æ fleiri viðskiptavinir okkar – bæði einstaklingar og fyrirtæki – sjá sér hag í að nýta þjónustu beggja félaga.
Á þriðja ársfjórðungi hægði á vexti lánasafnsins sem meðal annars endurspeglar minni hagvöxt í íslensku hagkerfi. Yfirleitt er það svo að við fögnum góðum hagvexti en nú er verkefnið að ná niður verðbólgu og vöxtum og því jákvætt að það dragi úr hagvexti. Hátt vaxtastig kemur við heimilin og fyrirtækin í landinu og hefur dregið úr neyslu og umsvifum almennt, í takt við markmið Seðlabankans. Þau heimili sem völdu að festa vexti íbúðalána sinna þegar vaxtastig var lágt hafa notið góðs af því og verið í ákveðnu skjóli. Það er því viðbúið að fyrir marga verði það þungt fyrir heimilisbókhaldið þegar fastvaxtatímabili íbúðalánsins líkur. Við höfum því undanfarnar vikur sett okkur í samband við þennan hóp viðskiptavina til að fara yfir valkostina. Í boði eru ýmsir kostir til að lækka greiðslubyrði og mikilvægt að hver og einn kynni sér þá og meti hvað henti best. Ef staðan er þröng þá metum við hvert tilvik fyrir sig og leitum sameiginlega að lausn. Við hvetjum alla sem hafa áhyggjur af stöðunni til að hafa samband við okkur til að fara yfir þá valkosti sem eru til staðar.
Í október kynntum við skipulagsbreytingar sem fólst í stofnun sérstaks sviðs, rekstur og menning. Markmið breytinganna er aukið samstarf mikilvægra stoðsviða, aukin skilvirkni í rekstri, markviss stýring umbreytingarverkefna og enn skýrari fókus á þjónustu og upplifun viðskiptavina. Sviðið mun jafnframt gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun og mótun fyrirtækjamenningar Arion banka og leiðir Birna Hlín Káradóttir nýja sviðið, en hún hefur gengt starfi yfirlögfræðings bankans frá árinu 2019 og setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2020. Menning og áhættuvitund skipta miklu í starfsemi fjármálafyrirtækja og var það því sérstaklega ánægjulegt að þegar Moody‘s hækkaði lánshæfiseinkunn okkar þá hækkaði fyrirtækið einnig þá einkunn sem snýr að áhættu tengdri umhverfis- og samfélagsþáttum og stjórnarháttum bankans og tók sérstaklega fram að áhætta vegna stjórnarhátta vær lág í ljósi fjárhagsstefnu bankans og áhættustýringar.“
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður föstudaginn 27. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Birna Hlín Káradóttir framkvæmdastjóri reksturs og menningar mun jafnframt kynna nýlegar skipulagsbreytingar innan bankans. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð sem birtist fyrir neðan vefstreymið. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.
Q3 2023 - Press release Arion Bank
Arion Bank - Investor presentation Q3 2023
Arion Bank Condensed Consolidated Financial Statements 30 September 2023
Fyrirvari
Tilkynning þessi inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi viðhorf stjórnenda um framtíðina og mögulegan fjárhagslegan árangur. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þeir þættir sem mikilvægastir eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka eru meðal annars eftirfarandi: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbólgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnisumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Tilkynning þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem þegar liggur fyrir um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum, ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er tilkynning þessi var birt. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að afrita, breyta, endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.